Nýleg rannsókn á hikorðum í ensku, t.d. uh, um og er, leiðir í ljós að þau gagnast börnum á máltökuskeiði. Fullorðnir nota hikorðin gjarnan þegar þeir eiga erfitt með að finna rétta orðið yfir það sem þeir ætla að lýsa. Þannig fá börn skilaboð um að þau eigi að veita orðinu eða orðunum eftirtekt. Auðvitað gætu hikorð gagnast börnum á annan hátt, eins og Hlíf benti mér á, því að maður notar oft hikorð áður en maður hættir við setninguna sem maður er byrjaður að mynda.
http://onlinelibrary.wiley.com/doi/10.1111/j.1467-7687.2011.01049.x/abstract